almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Þingmaðurinn rökstyður mál sitt alveg ágætlega eins og alltaf. Við erum að tala um ákveðnar lagfæringar, ef ég orða það þannig, þ.e. verið er að bæta ákveðna hluti er snúa að fórnarlömbum mansals. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er hvort hann sé sammála mér um að það sé jafnframt mikilvægt að styrkja löggæsluna, um leið og við leitumst við að bæta réttarstöðu og það umhverfi sem fórnarlömb mansals búa við, þegar slíkt kemst upp eða þegar einstaklingar leita til okkar sem fórnarlömb mansals eða við komumst að því að þeir eru fórnarlömb mansals, hvers konar mansal sem það kann að vera, það eru margar tegundir af því. Að lögreglan og mögulega landamæraeftirlit, og aðrir þeir sem fylgjast með og reyna að koma í veg fyrir mansal eða koma upp um mansal, fái mögulega, ef þess þarf, aukið fjármagn, tæki og tól, heimildir og þess háttar. Þekkir hv. þingmaður hvort við getum gert betur á þeim vettvangi, þ.e. að grípa kannski fyrr inn í, uppljóstra um fleiri mansalsmál, koma í veg fyrir að fleiri glæpamenn komist upp með að smygla fólki með einhverjum hætti til landsins eða koma því í ánauð hér á landi, með því að styrkja löggæsluna og það varnarumhverfi sem við höfum?