breyting á dönskum lögum um móttöku flóttamanna.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað ekki rétt að við séum að fara í þveröfuga átt við hin Norðurlöndin, þó að það sé rétt hjá hv. þingmanni að við höfum fengið hlutfallslega fleiri umsóknir. Það skýrist einkum af því einu að hér eru reglurnar öðruvísi miðað við önnur lönd hvað varðar þá sem nú þegar hafa hlotið alþjóðlega vernd í öðru ríki. Og það er það sem við höfum verið að reyna að breyta til að hafa þetta sambærilegt öðrum löndum, sem er einmitt hvatt til að gera til að koma í veg fyrir að fólk misnoti sér þetta kerfi og til að það gagnist best þeim sem eru í mestu neyðinni og hafa ekki alþjóðlega vernd neins staðar. Staðan er þannig að það eru mjög margir á flótta í heiminum og löndin þurfa að koma sér betur saman um hvernig þau ætla að mæta þeirri stöðu. Ég held að það sé ákveðin áskorun að laga kerfið að fyrirkomulaginu í löndunum í kringum okkur eins og frumvarpið sem er til umfjöllunar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd gerir. Ég bind vonir við að það frumvarp nái fram að ganga.