151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

spá OECD um endurreisn efnahags Íslands.

[13:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Frú forseti. Þetta er allt rétt og gott og blessað. En það er samt engu að síður þannig að OECD dregur þetta mjög skýrt fram; það er ekkert þróað ríki innan OECD sem verður jafn lengi að endurheimta fyrri efnahagsstyrk. Það er ekki stjórnarandstaðan sem segir þetta, það er OECD sem dregur þetta fram. Þrátt fyrir vel meinandi og margar ágætisaðgerðir þá er það nákvæmlega það sem við bentum á í byrjun, að þær þyrftu að vera sértækari og miða við þá hópa og þau fyrirtæki sem eiga við mestan vanda að glíma.

Gott og vel. Við sáum það líka að það var t.d. samdráttur í innviðafjárfestingum, og það þýðir ekkert að benda bara á sveitarfélögin, ekki síst sveitarfélögin í Kraganum, að þau hafi brugðist seint við. Einhverra hluta vegna var viðbragðsáætlun ríkisstjórnarinnar varðandi innviðafjárfestingar mjög hæg. Þunginn og seinagangurinn var mjög mikill. Af hverju var ekki farið af stað í allar þessar framkvæmdir sem voru tilbúnar? Það er það sem er erfitt að horfa upp á. Um leið vil ég spyrja hæstv. ráðherra, ekki síst í ljósi þess sem var sagt um nýsköpunina — ég tel mjög mikilvægt að við hugsum vel um nýsköpunina og sprotafyrirtækin — (Forseti hringir.) að engu að síður benda forsvarsmenn nýsköpunar- og sprotafyrirtækja á að gengisstöðugleikinn sé það sem skipti mestu máli: (Forseti hringir.) Hvernig sér hæstv. ráðherra umhverfi fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki þegar kemur að gengisstöðugleikanum? (Forseti hringir.) Það er stærsta hindrunin fyrir nýsköpunarfyrirtækin (Forseti hringir.) til að fá erlendar fjárfestingar ef við erum með þessa vonlausu krónu.