atvinnuleysisbætur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir þessa fyrirspurn og vil segja það hér í upphafi að ég held að öryggisnetin okkar í þessum faraldri hafi gripið langstærstan hluta einstaklinga og fjölskyldna gríðarlega vel. Við höfum kappkostað það, bæði þegar kemur að atvinnuleysistryggingakerfinu og eins öðrum kerfum, þau hafa gripið fólkið okkar vel. Það sést m.a. í útgjöldum sem munu fara í gegnum atvinnuleysistryggingar, að það kerfi hefur gripið gríðarlega vel. Hlutabótaleiðin greip gríðarlega vel. Við höfum lengt tímabil tekjutengdra bóta sem hefur gripið gríðarlega vel. Það sjáum við líka núna í þessu átaki, Hefjum störf. Þar förum við þá leið að við ætlum að skapa störf, við ætlum að koma hlutunum af stað í íslensku samfélagi. Þar er búið að skapa 8.000 störf, yfir 8.000 störf, sem hefur skilað sér í næstum 3.000 ráðningarsamningum. Það þýðir að það eru enn eftir 5.000 störf og það eru mjög fjölbreytt störf. Þetta eru ekki eingöngu störf í ferðaþjónustu. Þetta eru störf í opinbera geiranum, störf í almenna geiranum. Þetta eru störf í ráðuneytum, stofnunum, mjög fjölbreytt störf.
Hv. þingmaður spyr að því hvort ríkisstjórnin ætli virkilega að skikka fólk til að vinna og taka störf sem eru í boði. Atvinnuleysistryggingar eru hugsaðar þannig að þær grípi inn í þegar viðkomandi hefur ekki starf. Já, þessi ríkisstjórn er mjög stolt af því að hún er að skapa störf, hún er að skapa vinnu, þetta er eitt stærsta starfaátak sem ráðist hefur verið í. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf haft það í sinni grundvallarstefnuskrá að vinnan sé undirstaðan undir velferðinni vegna þess að við þurfum að vera með öflugt atvinnulíf. Við þurfum að vera með öflug störf. Það er þessi ríkisstjórn að gera. Þetta nýja starfaátak, Hefjum störf, grípur svo sannarlega inn í og því fagna ég hér og er mjög stoltur af því.