151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

atvinnuleysisbætur.

[13:24]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Störf við hæfi hljóta að vera grundvöllurinn að velferð fólks, ekki bara einhver störf bara til að vinna. Ráðherra sagðist í viðtali fyrir ári ekki vilja að námsmenn né aðrir á atvinnuleysisskrá fengju fjármagn úr ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt. Þetta er það sem ráðherra sagði í viðtali fyrir ári. Er virkni virkninnar vegna ákjósanleg eða ætti markmiðið að vera velferð fólks og þar af leiðandi virkni og verðmætasköpun á eigin forsendum? Að draga aðeins úr skilyrðingum snýst nefnilega um að treysta fólki til að vera ekki latt og svikult, fyrir utan það að staðreyndirnar sýna að fólk vill nýta rétt sinn til atvinnuleysisbóta til að finna vinnu við hæfi. Fólk vill vinna en ráðherra kemur fram við fólk á atvinnuleysisbótum eins og það sé latt og svikult og vilji eitthvað fyrir að gera ekki neitt. Við Píratar munum leggja fram einfalda breytingartillögu við lög um atvinnuleysistryggingar, þ.e. að þegar svipta á einhvern atvinnuleysisbótum þurfi einnig að horfa til þess að starfið sem hann hafnaði samræmdist hvorki menntun einstaklingsins né starfsreynslu. Þætti hæstv. ráðherra ekki eðlilegt að horft yrði til þessara þátta (Forseti hringir.) þegar ríkið ákveður að kippa fótunum undan fólki, þ.e. að starfið hafi hvorki samrýmst menntun einstaklings né starfsreynslu?