atvinnuleysisbætur.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Halldóra Mogensen leggur þeim sem hér stendur orð í munn þegar hún segir að litið sé á þá sem eru atvinnulausir eins og þeir vilji ekki vinna. Það er algjörlega rangt og ég vísa því algjörlega á bug. Það er hins vegar svo að það er gríðarlega mikilvægt að skapa hér störf (Gripið fram í.) og það er þessi ríkisstjórn að gera. Hún er að skapa mikinn fjölda starfa og við höfum, með lengingu tekjutengda tímabilsins og með ýmsum aðgerðum, einmitt sýnt að atvinnuleysisbótakerfið hefur gripið inn í þegar faraldurinn stóð sem hæst. En við erum líka að grípa myndarlega inn í þegar kemur að sköpun starfa og ég er mjög hissa á því að heyra það hér, í þingsal Alþingis, þegar við erum að greiða út tugi milljarða í atvinnuleysisbætur, að það séu efasemdir um skynsemi þess að skapa störf og um átakið Hefjum störf. Nákvæmlega sambærilegt átak og var í efnahagshruninu, bara miklu öflugra (Forseti hringir.) og miklu stærra. Við erum að skapa störf fyrir allan þennan fjölda. Það er markmið þessarar ríkisstjórnar og það er að takast og því fagnar sá sem hér stendur.