151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

málefni öryrkja.

[13:27]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Forseti. Síðdegis í gær varð ég þess heiðurs og þeirrar ánægju aðnjótandi sem fulltrúi Flokks fólksins að taka þátt í pallborðsumræðum á opnum fundi Öryrkjabandalags Íslands sem haldinn var í Hofi á Akureyri. Fundurinn var afar vel heppnaður og er ástæða til að þakka Öryrkjabandalaginu fyrir gott framtak og þrotlausa baráttu fyrir þann þjóðfélagshóp sem það berst fyrir.

Þarna voru m.a. kynntar niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar um afstöðu fólks til ýmissa þátta velferðarkerfisins. Ég ætla aðeins að fleyta rjómann af könnuninni sem kynnt var í gær. Um 55% aðspurðra sögðust sammála því að fatlað fólk í þeirra sveitarfélagi ætti að hafa tækifæri til jafns við aðra til að taka þátt í samfélaginu. Takið eftir, einungis 55%. Tæp 30% voru ósammála og 17% hvorki né. Enn eru út af standandi 47% í samfélaginu sem eru í raun með fordóma gagnvart fötluðum. Hér er mikið verk að vinna til að sigrast á neikvæðri afstöðu í garð fatlaðra í samfélagi okkar.

Annað sem ég vil nefna, virðulegi forseti, er að 90% eru hlynnt því að sálfræðiþjónusta sé niðurgreidd til allra eins og önnur heilbrigðisþjónusta. Ríkisstjórnin kýs hins vegar að gera það ekki. Svo er annað: 70% telja að aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni sé slæmt hér á landi. Nær 80% telja að heilbrigðisþjónustan hér á landi eigi að vera gjaldfrjáls og svo telja 90% að óskertur örorkulífeyrir eigi að vera jafn hár eða hærri en lágmarkslaun, sem eru í dag 351.000 kr. Í dag er óskertur örorkulífeyrir því miður um 100.000 kr. lægri en lágmarkslaun. Hér sker sig úr stór hluti atvinnurekenda og sjálfstætt starfandi sem telja að örorkulífeyrir eigi að vera lægri en lágmarkslaun.

Ég spyr hæstv. félags- og barnamálaráðherra í fyrsta lagi: Hvað finnst honum um að tveir þriðju landsmanna telji að aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir börn og unglinga sé slæmt? Í öðru lagi: Sýna þær niðurstöður að um 90% landsmanna vilja að óskertur örorkulífeyrir sé jafn hár eða hærri en lágmarkslaun ekki að ríkisstjórnin hefur bæði brugðist þessum hópi, öryrkjum, og líka haldið öryrkjum undir fátæktarmörkum (Forseti hringir.) í trássi við eindreginn þjóðarvilja? Þjóðin og kjósendur vilja ekki að þetta sé eins og þetta er.