málefni öryrkja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en ég velti fyrir mér: Hvernig getur ríkisstjórn sem skilur svona stóran þjóðfélagshóp eftir í læstri, rammgerðri fátæktargildru farið kinnroðalaust í kosningabaráttu og horft upp á það að það munar 100.000 kr. á framfærslu þessa þjóðfélagshóps, sem er á berstrípuðum almannatryggingalaunum, og lægstu launum? Ég velti fyrir mér, og það er nú eiginlega bara þessi eina spurning: Telur hæstv. ráðherra að mjólkurlítrinn hjá fátækustu Íslendingunum, örorkulífeyrisþegum og þeim sem eru hér að hokra, kosti minna en hjá öllum hinum? Hvernig í veröldinni er hægt að teikna upp nokkurn skapaðan hlut fyrir þetta fólk? Ég fékk fregnir í gær frá ungum manni sem sagði: Ég var að fá útborgað, ég var að borga húsaleiguna, ég á eftir 10.000 kr. Þetta er þyngra en tárum taki, virðulegi forseti, og ég spyr hæstv. ráðherra enn á ný: Hvernig er hægt að afsaka þetta?