málefni öryrkja.
Virðulegi forseti. Það sést auðvitað á yfirstandandi fjárlögum að ríkisstjórnin tók meðvitaða ákvörðun um það að skuldsetja ríkissjóð til þess m.a. að verja viðkvæma hópa í samfélaginu. Á þessu ári og á síðasta ári erum við að reka ríkissjóð í miklum halla þannig að … (IngS: …kostnaðurinn.)
Virðulegur forseti. Ég er mjög ánægður með margt sem við höfum gert. En erum við búin að skapa hið fullkomna kerfi? Nei, en við höfum hins vegar aukið fjárveitingar til örorkulífeyrisþega um 4 milljarða á kjörtímabilinu. Við höfum farið í ýmsar skattkerfisbreytingar sem skipta máli fyrir þennan hóp. Aðgerðir í húsnæðismálum hafa snert þennan hóp sérstaklega. En erum við búin að gera allt sem þarf að gera? Nei, klárlega ekki. Við þurfum að ráðast í kerfisbreytingu þegar kemur að þessum málum. Það eru vonbrigði að ekki hafi tekist að ná saman um það á þessu kjörtímabili. (Forseti hringir.) En við höfum hins vegar verið að verja þessa málaflokka og það kemur fram í því (Forseti hringir.) að ekki er búið að skera niður um eina einustu krónu þrátt fyrir halla á ríkissjóði á þessu ári og því síðasta.