151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

skimanir fyrir leghálskrabbameini.

[13:35]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Velferðarnefnd hefur nú frá því um áramót verið með athugun á því hvernig tilfærsla á skimunum fyrir krabbameini í leghálsi frá Krabbameinsfélaginu til hinna ýmsu stofnana hérlendis og erlendis hefur gengið. Skemmst er frá því að segja að allir sérfræðingar sem komið hafa fyrir nefndina, utan einn einasti sem leitt hefur þessa ógæfuferð fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, eru á því að með þeirri ákvörðun stjórnvalda að flytja rannsókn á sýnum út fyrir landsteinana sé heilsu kvenna stefnt í hættu. Tilfærslan í heild er með slíkum eindæmum að mánuðum saman hefur heilsu kvenna verið stefnt í hættu. Um er að ræða krabbameinsrannsóknir, skimun á heilbrigðum konum en einnig rannsóknir á konum sem áður hafa greinst með frumubreytingar eða farið í keiluskurð og þurfa því á þéttu eftirliti að halda. Leghálskrabbamein getur verið banvænt, sérstaklega ef töf er á greiningum, og því skiptir miklu máli að ekki sé gamblað með slíkt, að mistök séu viðurkennd ef þau verða og breytt sé um kúrs ef augljóst er að ákvörðun um rannsóknir erlendis sé misráðin. Allir helstu sérfræðingar í þessum málum eru sammála um mikilvægi þess að taka ákvörðun fljótt um að afturkalla þessa ákvörðun svo að hægt verði að hefja undirbúning rannsókna hér á landi.

Nú er hæstv. forsætisráðherra leiðtogi þessarar ríkisstjórnar og þótt málaflokkurinn heilbrigðismál sé ekki á hennar borði get ég ekki annað á þessum tímapunkti en spurt hana hvort hún treysti ekki orðum okkar færustu sérfræðinga sem hafa mánuðum saman, síðast í morgun, sent það ákall til stjórnvalda að breyta um þennan kúrs og leiðrétta þessi augljósu mistök sín.