151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

skimanir fyrir leghálskrabbameini.

[13:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vil segja það fyrst að ég held að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi haft málefnalegar ástæður fyrir að gera breytingar á fyrirkomulagi þessara skimana. Hún hefur farið yfir það hér í þingsal og vafalaust líka við velferðarnefnd. Það liggur líka fyrir að við þessa yfirfærslu hefur verið, getum við sagt, töluverður biðtími, lengri biðtími en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kom fram síðast í gærkvöldi hjá yfirmanni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en biðtíminn hefur líka verið að styttast og styttist nú með hverri viku sem líður. Það sem helst hefur tekið tíma er skráning á sýnum og niðurstöðum og aftur er verið að gera úrbætur á þessu sem munu flýta ferlinu og koma því í viðunandi horf. Það liggur hins vegar alveg fyrir, og það er alveg rétt sem fram hefur komið, að þetta hefur tekið lengri tíma en vonir stóðu til. Markmiðið með þessum breytingum er að gera þessa þjónustu aðgengilegri fyrir konur því þetta er auðvitað gríðarlega stórt heilsufars- og jöfnunarmál. Það voru forsendurnar fyrir ákvörðun heilbrigðisráðherra á sínum tíma.

Hv. þingmaður spyr mig hvort til standi að afturkalla þessa ákvörðun eða að gera aðrar breytingar á fyrirkomulagi, sem væntanlega miðuðu þá að því að færa þessa úrvinnslu hingað heim og það hefur komið fram hjá heilbrigðisráðherra að það er ekki útilokað. Það sem ég á von á að sé næsta skref er að hingað komi skýrsla um þetta fyrirkomulag sem á að koma, að því er mér skilst, nú er ég ekki nákvæmlega inn í málum, í fyrstu viku júnímánaðar sem er í samræmi við ósk þingsins og er sú skýrsla unnin af Haraldi Briem. Við eigum sem sagt von á henni á allra næstu dögum eftir mínum upplýsingum. Ég held að það sé ágætt að fá hana í hús og leggja þá mat á stöðuna.