151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[13:53]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Af því að hv. þingmaður vitnaði til dræmrar þátttöku í atkvæðagreiðslum á danska þinginu, þ.e. að liðlega helmingur þingmanna sem þar situr hefði greitt atkvæði, vill forseti sanngirninnar vegna geta þess að forseta er kunnugt um að danska þingið hefur notað það sem viðbrögð við heimsfaraldrinum að fækka kerfisbundið í atkvæðagreiðslum en séð til þess að hlutföll raskist ekki. Ég hygg að þingið hafi starfað þannig mestan hluta tímans að einungis rétt liðlega helmingur þingmanna kemur til atkvæðagreiðslu en í réttum hlutföllum miðað við þingflokka. Við höfum sem betur fer ekki þurft að grípa til þessa ráðs en höfum farið í aðrar aðgerðir í staðinn, bara svo að danska þinginu sé komið hér aðeins til varnar.