samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Forseti. Mig langaði aðeins til að spyrja út í greinargerð frumvarpsins. Í kaflanum Áhrif á persónuvernd segir, með leyfi forseta:
„Mat á áhrifum á persónuvernd leiddi í fyrsta lagi í ljós áhættu sem mun fylgja því ef frumvarpið verður að lögum áður en lokið verður við gerð stafrænna lausna fyrir vinnslu upplýsinga samkvæmt frumvarpinu. Áður en sameiginlegar stafrænar lausnir verða að veruleika munu upplýsingarnar vera unnar á mismunandi formi. Þessu fylgir áhætta enda liggur fyrir að þeir sem vinna persónuupplýsingar á grundvelli heimilda frumvarpsins nota mismunandi skjalakerfi, misöruggar aðferðir til miðlunar upplýsinga og mismunandi viðmið við aðgangsstýringar að þessum kerfum.“
Í umsögn Persónuverndar, sem ákveðið er að hunsa, segir skýrt að nauðsynlegt sé að tryggja öryggið frá fyrsta degi, þ.e. frá gildistöku laganna:
„Er í því sambandi m.a. til þess að líta að um er að ræða vinnslu persónuupplýsinga sem í mörgum tilvikum geta talist mjög viðkvæmar, auk þess sem þær varða börn, en persónuupplýsingar barna njóta sérstakrar verndar samkvæmt ákvæðum laga nr. 90/2018 og reglugerðar (ESB) 2016/679 …“
Í þessu sambandi bendir Persónuvernd á mikilvægi þess að tryggt sé að aðlögunartími fram að gildistöku laganna sé nægjanlegur þannig að hæfilegt svigrúm gefist til að útfæra öruggar stafrænar lausnir fyrir gildistökuna, sem mér skilst að verið sé að gera að einhverju leyti. En það kemur mjög skýrt fram að þeir leggja til að fresta gildistöku laganna til þess að gefa meiri tíma af því að það er ljóst að þessi gagnagrunnur verður ekki tilbúinn. Það kemur fram í umsögn Persónuverndar og þar mæla þeir með því að við frestum gildistöku laganna.
Mig langar til að spyrja hvers vegna ekki er hægt að koma til móts við það að fresta gildistöku laganna um fjóra til fimm mánuði (Forseti hringir.) til að tryggja öryggi þessara viðkvæmu persónuupplýsinga um börn eins og Persónuvernd er að benda á. Hver er raunverulega ástæðan fyrir því að það liggur svo mikið á að við erum (Forseti hringir.) ekki tilbúin að fresta þessu í fjóra mánuði til að koma til móts við umsögn Persónuverndar?