samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Forseti. Það kom fram á fundum nefndarinnar og Persónuvernd hefur lýst áhyggjum sínum af því og telur nokkuð ljóst að gagnagrunnurinn verði ekki tilbúinn, að þessar nauðsynlegu stafrænu lausnir verði ekki tilbúnar á þessum tíma. Það er þess vegna sem talað er um mikilvægi þess að tryggja að nægur tími verði til að vinna þennan gagnagrunn áður en lögin taka gildi. Öðruvísi verður ekki hægt að tryggja öryggi þessara viðkvæmu gagna og persónuupplýsinga um börn.
Ég sé alveg að röksemdafærslan kemur fram í nefndarálitinu en það sem ég er að spyrja framsögumann um er: Þessir fjórir mánuðir — ef við erum að tala um að við þurfum aukatíma til að tryggja að gagnagrunnurinn verði tilbúinn áður en lögin taka gildi, hvers vegna er ekki komið til móts við það? Þetta eru örfáir mánuðir til að vega og meta mikilvægi þess að við séum raunverulega að tryggja öryggi þessara gagna. (Forseti hringir.) Ef gagnagrunnurinn verður ekki tilbúinn á þessum stutta tíma, sem mér heyrist helstu sérfræðingar segja okkur að muni að öllum líkindum ekki verða, (Forseti hringir.) af hverju hlustum við þá ekki á viðvörun sérfræðinganna?