151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[14:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er að spá í hvort ég sé nokkuð orðin of sein til að nefna að við töluðum um að kalla þetta mál inn á milli 2. og 3. umr. og fá gest frá félagsmálaráðuneytinu sem færi betur yfir þessi mál. Ég held að ég sé ekkert of sein að tala um það. Við erum ekki tryggari með það að kerfið verði tilbúið ef við seinkum gildistöku. Það getur ýmislegt komið upp á og Covid hefur breytt mörgu fyrir okkur. Það hefur ýmislegt komið upp á og mörgum málum hefur verið frestað og við erum ekkert tryggari með það að þetta verði tilbúið 1. júní. En við segjum bara: Við skulum láta lögin taka gildi 1. janúar. Þá verður hægt að bregðast við í haust ef allt fer í klúður varðandi það. En við skulum líka hugsa til þeirra barna sem yrðu þá í lausu lofti frá 1. janúar til 1. júní.