151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[14:41]
Horfa

Frsm. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir kynningu á nefndaráliti meiri hluta. Þetta er gott mál en það leynast hættur í málinu eins og meiri hlutinn leggur til að það verði samþykkt. Vil ég aðeins ræða þetta með persónuverndarþáttinn, sem er gríðarlega mikilvægur. Þarna eru grundvallarréttindi barna og fjölskyldna í húfi. Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, framsögumaður í þessu máli, segir að persónuverndarlögin séu skýr. Já, persónuverndarlögin eru almenn lög er varða persónuvernd. Í þessu frumvarpi hér varðandi samþættingu, þar sem eru sérlög, eru nákvæmar leiðbeiningar um hvað megi gera, að þegar beiðni um samþættingu þjónustu liggur fyrir er vinnsla upplýsinga um aðstæður barnsins heimil hjá tengiliðum, hjá málsstjórum, hjá þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns við framkvæmd verkefna samkvæmt 15. gr. og 5. kafla. Með vinnslu persónuupplýsinga er m.a. átt við söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og samkeyrslu upplýsinga um aðstæður barns, þar með talið viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi.

Þetta er í lögunum sem þið leggið til að taki gildi um áramótin. Þetta ákvæði toppar persónuverndarlögin af því að þannig skýrum við lögin.

Ef við horfum t.d. í orðskýringarnar er í 14. tölulið í 2. gr. talað um þjónustuveitanda og þar er sagt, með leyfi forseta:

„Til þjónustuveitenda teljast t.d. leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, framhaldsskólar, heilsugæsla, sérhæfð heilbrigðisþjónusta, lögregla, félagsþjónusta og barnavernd.“

Sem sagt allir sem koma að málefnum barna. Og nú ætlar meiri hlutinn að leyfa öllu þessu fólki að dreifa, miðla og vinna persónuupplýsingar um börn í viðkvæmri stöðu, fjölskyldur þeirra, heilsufarsupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi (Forseti hringir.) barna og fjölskyldna án þess að vera með það í skýrt (Forseti hringir.) afmörkuðum gagnagrunni.

Ég vil spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann út í hvort hann hafi áttað sig á þessu.