samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan þegar ég kynnti nefndarálitið þá hefur komið skýrt fram í þessari vinnu að engar upplýsingar fara á milli aðila, þjónustuaðila, nema börn eða fjölskyldur þeirra samþykki það eða biðji um það. Fram kom í andsvari hv. þingmanns að við værum að dreifa viðkvæmum persónuupplýsingum bara eins og smartís um allt. Það er í raun ekki þannig. Hver og einn hópur getur beðið um gögn, grunnskóli, leikskóli o.s.frv. Þegar barn er í leikskóla þá er það leikskólinn sem biður um gögn, eða félagsþjónustan, jafnvel barnavernd eða einhver aðili; tengiliðir og málsvarar. Það er ekki hver sem er, ekki almennur aðili sem fær þessi gögn bara með því einu að biðja um þau. Það þarf að vera ástæða fyrir því. Við getum ekki bundið færslu persónuupplýsinga algerlega við einhvern gagnagrunn. Við getum ekki treyst á eina tæknilega lausn hvað það varðar. Það er líka það. Varðandi persónuvernd þá gilda persónuverndarlögin í leikskóla og grunnskóla og þau gilda náttúrlega líka í þessu ákvæði, eins og kemur fram í nefndarálitinu.