samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vona svo innilega að foreldrar og börn, fjölskyldur, geri sér grein fyrir því hversu gríðarlega mikilvæg samþættingin á þessum kerfum kemur til með að vera fyrir alla þjónustuveitendur barna. Ég held ekki að hér verði eitthvert flæði persónuupplýsinga um börn, jafnvel um heilsufar fjölskyldu eða foreldra eða annað slíkt, að þær fari á eitthvert flakk. Eins og við segjum í álitinu þá telur meiri hlutinn ekki þörf á að seinka gildistöku laganna enda hefur hún upplýsingar um að allir innviðir séu reiðubúnir til að hefja innleiðingarferli um næstu áramót. Ég held að þetta sé ákveðinn misskilningur og hræðsla við það. En ég spyr á móti: Hvað verður um þau börn sem bíða þarna í þessa mánuði, bara langt fram á næsta ár þangað til lögin taka gildi? Það er allt tilbúið og við ætlum ekki að gefa neinn afslátt af persónuverndarlögunum hvað þetta varðar.