samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Ég ætlaði að koma inn á persónuverndarsjónarmiðin, en tveir ágætir þingmenn hafa komið inn á þau hér á undan mér og ætla ég þess vegna að fara yfir í aðra þætti. Til að innleiðing sem þessi megi takast er auðvitað nauðsynlegt að fjármögnun verkefna sé tryggð. Án hennar er lítil von um að árangur náist og það getur ekki nokkur ærleg manneskja verið á móti markmiðskafla laganna. En það á kannski eftir að svara spurningunni: Væri ekki hægt að ná mörgum þessara markmiða fram innan núverandi lagaramma? En látum það nú liggja á milli hluta.
Í greinargerð með frumvarpinu, á bls. 20, segir með leyfi forseta:
„Kostnaður vegna innleiðingar á árinu 2021 er fjármagnaður í fjárlagafrumvarpi ársins 2021.“ — Og hér kemur síðan áhersluatriðið: „Að öðru leyti hefur ekki verið gert ráð fyrir útgjöldum sem leiða af samþykkt frumvarpsins í fjármálaáætlun.“
Ég rak augun í þetta og varð svolítið hlessa, svo ég segi það alveg eins og er. Ég fór þá í nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar og þar er ekki vikið einu orði að kostnaði vegna málsins af því að hann hleypur á milljörðum, eins og kemur fram á bls. 19 í greinargerðinni.
„Niðurstaða matsins er því á þá leið að viðbótarútgjöld ríkissjóðs vegna heildarbreytinganna geti numið á bilinu 1.360 til 1.802 millj. kr. árlega fyrstu árin eftir gildistöku laganna auk innleiðingarkostnaðar“ — sem er auðvitað kapítuli út af fyrir sig að sleppa.
Ég spyr hv. þingmann: Hvað á það að fyrirstilla að að öðru leyti hafi ekki verið gert ráð fyrir útgjöldum sem leiða af samþykkt frumvarpsins í fjármálaáætlun? Við erum nýbúin að samþykkja fjármálaáætlun, það eru bara nokkrir dagar síðan.