samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt að það kemur ekkert fram í fjármálaáætlun meiri hlutans hvað varðar fjármögnun á þessum kerfum. En þetta er unnið í miklu og þéttu samstarfi við sveitarfélögin. Sveitarfélögin eru mjög áfram um þetta og eru mörg hver farin að vinna eftir þessu kerfi. Það kom t.d. fram hjá fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar og Kópavogs að þau sveitarfélög eru farin að vinna eftir þessu og telja löngu tímabært að þetta verði að lögum. Ég vona bara að hv. þingmaður sé ekki að leggja til að við frestum þessu góða frumvarpi. Mörg sveitarfélög eru þegar farin að undirbúa sig fyrir þessa miklu breytingu og kalla öll eftir því að þetta verði lögfest sem fyrst.