samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Kannski er um að ræða einhverja þinglokaþoku hjá okkur, en svona var samtalið. Ég bauð upp á þessa umræðu á fimmtudeginum. Ég hitti hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur á göngunum og bað um þessa umræðu og sagði henni að nefndarálitið yrði ekki tilbúið því að ég taldi nefndina vera undirbúna til að ræða málið án þess að nefndarálitið væri komið fram. Það er oft gert, að við ræðum málið þótt nefndarálitið liggi ekki fyrir. Það var mín ósk. Það hefur alltaf verið mikið kappsmál hjá mér í þeim málum sem ég hef verið með að öll nefndin fái tíma til þess að ræða málin, en svoleiðis fór það.
Ég vona að við höfum öll, bæði þeir sem unnu að málinu síðasta kjörtímabil, eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir, og fleiri góðir þingmenn sem hafa komið með góðar ábendingar — efnislegar breytingar í minnihlutaálitinu eru ekki margar þannig að ég treysti því að þetta sé besta mál og vona að það fari vel hjá öllum.