151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[15:20]
Horfa

Frsm. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Fyrst við erum farin að vitna í tveggja manna tal er rétt að minnast þess að á umræddum fimmtudegi hér á göngum þingsins óskaði hv. þingmaður eftir því að umræða daginn eftir myndi snúast um annað mál sem varðar fjöleignarhús þar sem hv. þingmaður var líka framsögumaður, (Gripið fram í.) af því að nefndarálitin í umræddum málum yrðu ekki tilbúin fyrir föstudag. Það var líka staðfest á nefndasviði. Þau komu hins vegar um kvöldið, til að því sé haldið til haga.

Ég vona að meiri hlutinn brjóti odd af oflæti sínu og leyfi sérfræðingum að njóta vafans núna. Það var ekki gert þegar um var að ræða flutning á leghálssýnum og það var það sem ég var að tala um. Þar er enginn gagnagrunnur tilbúinn og verður ekki tilbúinn. Þar er núna verið að fara af stað með einhvers konar greiningu, kom fram hjá forstjóra heilsugæslunnar í gær, greiningu á þörfum og hvað þurfi að vera í slíkum gagnagrunni. Það er þetta sem ég er að tala um hér, að vonandi brjóti stjórnarflokkarnir odd af oflæti sínu, hlusti í þessu máli á sérfræðinga og fresti gildistöku laganna um nokkra mánuði. Það breytir engu fyrir málið en það getur haft grundvallar- og úrslitaáhrif á traust almennings á þessu máli. Ég held að þessi ríkisstjórn eigi að læra af þeirri sneypuför sem hún er stödd í, í miðju því fári, varðandi annan gagnagrunn og annan tilflutning og aðra grundvallarbreytingu á þjónustu við íbúa landsins og hlusta nú á sérfræðinga í málefninu eins og Persónuvernd og Barnaverndarstofu sem þekkja málaflokkinn út og inn, starfa í honum alla daga.