samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Herra forseti. Ég þakka þetta andsvar. Ég er að leita hér að texta frá því að ég átti orðastað við hæstv. menntamálaráðherra um málið þegar fjármálaáætlun var til umræðu. En fyrst vil ég segja að ég hlustaði á hv. þingmann og framsögumann Höllu Signýju Kristjánsdóttur, þar sem hún fór þá leið að tala um væntan ávinning, sem var mjög skemmtilegt og ég mun sannarlega nota þá aðferðafræði þegar ég ræði um hin ýmsu önnur mál sem mér finnst að ríkisstjórn mætti hrinda í framkvæmd þó að þau kosti pening. Af því að raunverulega er það þannig að það er ávinningur af þessu og ef telja má hann til tekna getum við nú hrundið býsna mörgu í framkvæmd á næstu dögum. En það er önnur saga.
Ég spurði hæstv. barnamálaráðherra, þegar við vorum í umræðu um fjármálaáætlun núna í lok mars, hvort hann væri sáttur við fjármögnun þessa máls í fjármálaáætlun og svarið var: Já, hann væri fullkomlega sáttur. Hann fór síðan yfir það að um 1,5–2 milljarða kostnað væri að ræða. Það sem snúi að ríkinu sé í fjármálaáætluninni og það sem snúi að sveitarfélögum sé í jöfnunarsjóði. En ég tek undir það með hv. þingmanni að á þeim tveimur og hálfa mánuði sem liðinn er, og við höfum rætt bæði fjárlög og fjárauka og annað, hefur þess ekki sést stað, þannig að ég átta mig ekki alveg á því hvar þetta er nákvæmlega. Hæstv. ráðherra heldur því fram að þetta sé fullkomlega fjármagnað til næstu þriggja ára. Það má velta því fyrir sér hvort þetta þýði þá að tekið sé af einhverjum öðrum liðum eða hvernig það lítur út. Ég hef ekki betra svar en þetta. Þetta er það sem kom út á sínum tíma. En ég er sammála því að við leituðum að þessu í umræðunni um daginn og þá fundum við þetta ekki sérmerkt. Ég á því ekki betra svar, því miður.