samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í flestu er ég sammála henni þegar hún talar um mikilvægi þess að koma til móts við fátæk börn. Mig langar fyrst að spyrja hvort hún telji ekki að með þessu farsældarfrumvarpi um samþættingu kerfa gerbreytist aðstöðumunur barna sem eru kannski bæði fátæk og vanbúin til framtíðar, hvort þetta muni ekki hjálpa varðandi það.
Svo er það líka rétt hjá hv. þingmanni að mat á áhrifum á persónuvernd á frumvarpinu fór fram. Það leiddi í ljós að öruggara væri að vinna öll gögn í einum gagnagrunni, það er alveg rétt. En það þýðir ekkert endilega að aðrar lausnir séu ófullnægjandi. Mig langar til að spyrja hv. þm. Halldóru Mogensen hvort hún telji þá að þær aðferðir og þeir gagnagrunnar sem unnið er með núna séu ófullnægjandi og ekki hægt að treysta þeim þangað til annað komi í ljós. Allar stafrænar lausnir eru alltaf í þróun og við getum alveg ímyndað okkur að þó að eitthvert kerfi verði tilbúið 1. janúar 2022 þá þróist það eitthvað næstu ár eða geti dottið niður, það verði bara einhver kerfisbilun og kerfið detti niður. Eru þá öll mál bara stopp á meðan, svo ég tali um þetta í víðu samhengi?