samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Forseti. Ég þakka andsvarið. Ég er alveg sammála því að þessi mál öll eru ótrúlega jákvæð og að þessi vinna var góð. Mér finnst bara leiðinlegt hvernig fór með málið í nefndinni alveg á lokametrunum. Ég hefði viljað eiga þetta samtal. Ég sé bara mjög skýrt að það er þörf á því að fá ráðuneytið eða ráðherra til að koma aftur. Ég væri til í að fá Persónuvernd til að koma aftur til að ég skilji þetta betur, því að hv. þingmaður spyr mig hvort aðrar lausnir séu ófullnægjandi en ég hef ekki sérfræðiþekkingu til að meta það. Ég veit bara út frá minni reynslu að við höfum hunsað persónuverndarlögin allt of mikið. Við höfum ekkert verið að vinna mál almennilega út frá nýju persónuverndarlögunum og mig grunar að það sé ótrúlega lítil þekking og skilningur á persónuverndarlögum og persónuverndarmálum yfir höfuð í þessum ráðuneytum, í félagsmálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu. Það er það sem mig grunar út frá skorti á t.d. mati á áhrifum á persónuvernd trekk í trekk í frumvörpum sem við fáum til nefndarinnar. Ég treysti Persónuvernd sem sérfræðingi og fagaðila í þessum málaflokki og til þess að vera með rétta hugsun í þessu máli. Mér þykir vont að við séum ekki komin með nægilega góð rök fyrir því hvers vegna við fylgjum ekki fyrirmælum þeirra. Það er það sem ég hef áhyggjur af. Mig langar til að tryggja að við séum að gera þetta rétt.
Auðvitað eru stafrænar lausnir alltaf í þróun, það er bara besta mál og það á að vera þannig. Það á að halda áfram að þróa þær. Varðandi kerfisbilun myndi ég leggja til að við tryggðum það að Persónuvernd hefði aðgang að þeirri vinnu þegar við þróum þessar lausnir, að Persónuvernd fái að fylgjast með og sé með í vinnunni til að tryggja að þetta sé allt vel gert.