samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir svörin. Ég held að við getum alveg verið sammála um að það sé mjög mikilvægt að það sé algerlega skýrt að vinnsla á persónuvernd og í persónuverndarlögum verði fulltryggð. Ég er ekki í þessu ráðuneyti en ég hef lagt þessar spurningar fyrir og í vinnunni veit ég að fullt samráð var haft við Persónuvernd varðandi þessa hugmynd og frumvarp. Síðan var gert mat á áhrifum frumvarpsins á persónuvernd. Ég veit ekki betur en að haldið verði áfram að vinna mjög vel að þessum málum, að tryggja að þau mál verði í fullu samræmi við þau loforð sem hafa verið gefin. Ég er svo sem ekki með neina spurningu en ég vona, og tek undir með þingmanni, að unnið verði af fullum heilindum hvað varðar vinnslu á persónuvernd gagnvart öllum gögnum sem fara þarna um.