samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Forseti. Eins og ég sagði er ég enginn sérfræðingur í persónuverndarlögum eða persónuverndarmálum. En það sem ég sé er sá grundvallarmunur að hv. þingmaður treystir ráðuneytinu á meðan ég stóla á og treysti sérfræðingunum hjá Persónuvernd til að þekkja þetta. Ef ég er að vega og meta þekkingu ráðuneytanna á persónuverndarlögunum á móti þekkingu Persónuverndar á lögunum þá hallast ég að því að Persónuvernd hafi mögulega rétt fyrir sér. Það er það sem ég er að benda á. Þess vegna finnst mér gott að við tökum málið aftur inn í nefndina. Ég legg til að við fáum betri skilning á því hvað það er sem hefur misfarist í upplýsingamiðlun og hvaða misskilningur er í gangi á milli ráðuneytisins og Persónuverndar. Ég held að það væri mikilvægt fyrir okkur sem nefnd að hafa góðan skilning á því áður en við tökum ákvörðun um framhaldið varðandi þetta mál og hin málin, því að persónuverndarvinkillinn er rauður þráður í gegnum öll frumvörpin fjögur.