samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Herra forseti. Það er ekkert smámál sem við erum að ræða hér í dag og það er sérstakt fagnaðarefni að þessi í rauninni þrjú mál sem við munum ræða hér í beit séu komin inn í þingsal og að vilji standi til þess að klára þau núna í vor. Að baki liggur töluvert mikil vinna og þingmenn hafa farið yfir í hverju hún hefur legið, ekki bara í þeirri þingmannanefnd sem stofnuð var og ég og fleiri þingmenn úr hv. velferðarnefnd áttum sæti í, heldur ekki síður, sem er kannski enn þá mikilvægara, öll þau hundruð einstaklinga víða af landinu sem tóku af mjög miklum metnaði og krafti þátt í að koma þessum málum á þann stað þar sem þau eru í dag.
Hér er í rauninni verið að taka upp algjörlega nýja hugsun í þjónustu við börn. Við ræddum það í þingmannanefndinni hvað við ættum að kalla afurðina og lentum því þannig að við köllum þetta samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ég held að það sé ágætislending að hafa þetta þannig. En á þessu hanga síðan þessi tvö frumvörp sem við ætlum svo að ræða hér síðar í dag, þ.e. annars vegar frumvarpið um Barnaverndarstofu og hins vegar frumvarpið um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
Ég hef fullan skilning á þeim áhyggjum sem nokkrir þingmenn hafa viðrað hér í dag varðandi það að við erum að taka skref sem munu reyna að ýta við þessum sílóahugsunarhætti sem hefur verið í þjónustu við börn. Við ætlumst í rauninni til þess með samþykkt þessara frumvarpa, og það er kannski grundvallarhugsunin í frumvörpunum, að mismunandi kerfi fari að tala saman í meira mæli. Það er gríðarlega mikilvægt. Og við erum ekki að tala um einhver smákerfi. Við erum að tala um kerfi eins og menntakerfin, eins og Félagsþjónustu sveitarfélaga, eins og heilbrigðisþjónustu og fleiri aðila. Það skiptir svo miklu máli, til að við náum því markmiði sem er undirtónninn í þessu öllu saman, að gefa samfélaginu okkar, mér liggur við að segja þá gjöf, án þess að ég sé að reyna að vera eitthvað væminn, að börnin okkar fái eins fullkomna og góða þjónustu og þau geta mögulega fengið og að við búum þau út í lífið á eins jákvæðan hátt og kostur er. Þetta er í rauninni kjarninn í öllu þessu starfi. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra á mikinn heiður skilinn fyrir þá elju sem hann hefur sýnt í þessum málum.
Menn hafa velt fyrir sér: En eru hætturnar ekki einmitt fólgnar í þessu, að núna ætli allir að fara að tala saman? Það hefur komið hér ítrekað fram í dag. — Jú, það kann að vera. Það er svona, ég veit ekki hvort ég á að segja hætta, en auðvitað kann að vera þegar menn ræða saman um viðkvæm málefni að í einhverjum tilfellum fari á milli viðkvæmar upplýsingar. Það leiðir bara af sjálfu sér. En markmiðið með þeirri deilingu upplýsinga er svo mikilvægt að í mínum huga trompar það algerlega þær áhyggjur sem við eigum að hafa. Það þýðir ekki að við eigum ekki að virða persónuvernd og við eigum ekki að virða persónuverndarlög, sannarlega ekki. En ég trúi því, öfugt við þann þingmann sem talaði hér á undan mér, að við getum treyst því að þau kerfi sem vinna með þessi mál og þeir einstaklingar sem þar eru undir muni fara vel með upplýsingarnar. Og ég trúi því líka að ráðuneytið muni fylgjast vel með því að það sé gert og að undirstofnanir þess muni gera það.
Menn hafa líka rætt dálítið um kostnaðinn. Ég man, eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson nefndi hér áðan, að hæstv. ráðherra hefur einmitt sagt að hann teldi að þessi verkefni væru fjármögnuð. Ég hef líka heyrt ráðherra áður og á fundum ræða það að þessi verkefni væru fjármögnuð. Eðlilega hafa Samtök íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin yfirleitt nokkrar áhyggjur af því að það muni verða kostnaðarauki í upphafi. Það er fullkomlega eðlilegt og það er hreinlega hlutverk þeirra að viðra þær áhyggjur fyrir okkur þingmönnum. Ég held að okkur kæmi það hreinlega á óvart ef þau gerðu það ekki. En þá er mikilvægt að hafa í huga að frumvarpið eða frumvörpin — þetta eru í rauninni fjögur frumvörp, ég nefndi ekki áðan frumvarp til breytinga á barnaverndarlögum — breyta í sjálfu sér ekki neinu um kostnaðarskiptingu á milli þessara tveggja lykilaðila í stjórnkerfinu, þ.e. ríkis annars vegar og sveitarfélaga hins vegar, heldur er í rauninni verið að tryggja það að þau verkefni sem þessir aðilar hafa í þágu farsældar barna verði rekin með betri og skilvirkari hætti en gert í dag þegar lögin hafa verið sett. Það er markmiðið. Þá er til nokkurs barist ef okkur tekst að tryggja það.
Það hefur líka verið nefnt og aðeins komið inn á það hér í dag, að það sé ekki nægilega mikið samráð á milli hinna mismunandi ráðuneyta og hinna mismunandi þátta stjórnkerfisins. Þarna er aftur þessi sílóahugsun sem ég nefndi í upphafi. En þá er einmitt að nefna að þegar árið 2018, þ.e. fyrir bráðum þremur árum síðan, skrifuðu fimm eða sex ráðherrar ríkisstjórnarinnar, hæstv. félags-, heilbrigðis-, mennta-, dómsmála-, forsætis-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga hreinlega undir viljayfirlýsingu um að brjóta niður múra á milli þessara sílóa. Síðan hefur líka verið starfandi ráðherranefnd um einmitt þetta verkefni. Ég held að þetta skipti töluverðu máli og ég held að þeir þingmenn sem voru á barnaþingi á Hilton-hótelinu haustið 2019, að mig minnir frekar en haustið 2018, þar sem allir þessir lykilaðilar komu saman og ræddu málin, hafi séð hvað þetta skiptir miklu máli, að menn tali raunverulega saman og séu ekki að pukrast með málefnin hver í sínu horni eru.
Þau atriði sem eru mikilvæg í þessu frumvarpi hafa verið ágætlega rakin hér í dag, bæði í máli hv. þm. Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, framsögumanns málsins, og í máli annarra þingmanna og ég ætla ekki að tíunda það í smáatriðum. En ég vil í lokin, herra forseti, í fyrsta lagi þakka öllum þeim sem komu að þessu máli á vinnslustigunum, og, eins og ég nefndi í upphafi, hafa hundruð Íslendinga komið þarna að. Það er ástæða til að þakka þeim sérstaklega. Ég þakka öllum umsagnaraðilum, og ekki hvað síst vil ég þakka hv. velferðarnefnd fyrir vinnuna í þessu máli. Ég fagna því að menn vilji taka einn aukasnúning á málinu á milli 2. og 3. umr. Ég held að það sé bara ljómandi gott af því að það er, eins og hv. þm. Halldóra Mogensen kom inn á hér áðan, nokkuð til þess vinnandi að ná enn þá betri samstöðu um málið. Ég er algerlega sammála því og vona að slík fundahöld geti leitt okkur nær þeirri niðurstöðu.
Að lokum, fyrst maður er kominn í þennan þakkargír, þá langar mig sérstaklega að þakka hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur fyrir hennar elju og vinnu í sambandi við þessi mál öll.