samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Við ræðum hér enn frumvarp um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Mig langar að spyrja hv. þm. Ólaf Þór Gunnarsson: Hann talaði um að svo margir hefðu komið að þessu og mikil samstaða hefði verið um að vinna þetta allt vel. Er það þá ekki ofboðslega sorglegt hvernig þetta fór í velferðarnefnd, að við skulum ekki hafa gefið okkur aðeins meiri tíma? Við hefðum getað tekið meiri tíma í þetta. Ég styð þessi frumvörp alveg hundrað prósent, þetta er alveg frábært mál. En ég hef áhyggjur af því ef við erum með stóran hluta af kerfinu niðrum okkur, með börn á biðlista og á biðlista til að komast á biðlista. Við þurfum að leysa þessi mál. Hvernig sér hann það fyrir sér að við samþykkjum þetta mál að þessu biðlistamáli óleystu? Þetta á nefnilega að taka gildi nú um næstu áramót. Á að færa biðlistana inn í þetta nýja kerfi eða á að taka biðlistana út úr kerfinu? Nú erum við að fara að byggja upp nýtt kerfi. Reynslan segir okkur að um leið og við förum að byggja upp nýtt kerfi þá koma alltaf óvæntar lausnir og málin tefjast líka. Það vantar kannski starfsfólk, það þarf að þjálfa fólk. Hvað verður þá um biðlistana? Lengjast þeir? Hvað skeður? Ég læt þetta duga.