151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[16:37]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ég deili þessum áhyggjum þingmannsins að nokkru leyti, þ.e. að við svona yfirfærslu og við svona kerfisbreytingu kunni að verða einhverjir hnökrar á málum til að byrja með. Ég ætla ekki að segja að það sé óhjákvæmilegt en það kann vel að vera að svo verði. En ég held engu að síður að sá undirbúningur sem hefur farið fram, bæði undanfarin þrjú ár og svo líka undanfarna mánuði eftir að málið kom inn í þingið, muni á vissan hátt slétta úr þeim erfiðleikum sem upp kunna að koma. Það er rétt hjá þingmanninum að auðvitað flytjast biðlistarnir inn í nýju kerfin og það verður haldið áfram með vinnuna í þeim. Mun það tefja málið? Ég vona ekki. Ég vona þvert á móti að við tökum upp það nýja verklag með tíð og tíma að biðlistarnir muni styttast og eins og þingmanninum er kunnugt um er hugsunin í þessu líka sú að við fáum ekki mörg mál upp fyrir fyrsta stigs þjónustu eins og kemur fram í frumvarpinu, einmitt vegna þess að við erum að samþætta hana. Ég vona að það gangi vel.

Varðandi vangaveltur þingmannsins um hvort við hefðum átt að vinna málið betur í velferðarnefnd þá má sjálfsagt alltaf segja það. En ég vil minna þingmanninn á að það eru þrátt fyrir allt þrír mánuðir síðan síðustu gestir komu fyrir nefndina. Er það nógur tími? Það er alla vega mikill tími.