samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er alveg rétt hjá þingmanninum að þessi samtök sem hann nefndi, Þroskahjálp, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og Öryrkjabandalagið, hafa áhyggjur af því að ekki sé búið að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég vil samt ítreka að það hefur engu að síður komið fram í samtölum mínum, og væntanlega hv. þingmanns líka, við fulltrúa þessara samtaka að þó að þau hafi áhyggjur af því hvernig þeirra skjólstæðingum farnist í þessu nýja kerfi þá styðja þau það engu að síður að við förum þessa leið og byrjum að samþætta. Ég held að það sé mjög mikilvægt í þessu.
Ég tek undir það með þingmanninum að það er mikilvægt að samningurinn verði lögfestur og ég greiddi atkvæði með þeirri tillögu á sínum tíma, eins og hv. þingmaður hefur væntanlega gert. Nú er í gangi vinna eftir að þingsályktunartillaga var nýlega samþykkt um lokaþýðingu á samningnum, eða eigum við ekki að vona það? Þá væntir maður þess að hægt verði að klára það mál þannig að hægt verði að fullnusta þá þingsályktunartillögu. En það er alveg rétt hjá þingmanninum að allt er þetta mjög mikilvægt. En eigum við að bíða eftir því? Nei, ég held ekki. Við eigum samt að segja eins og hv. þingmaður sagði réttilega: Það skiptir máli að þessi mál séu kláruð. Það er alveg hárrétt hjá þingmanninum og ekki er annað hægt en að taka undir það.