samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður er fulltrúi í velferðarnefnd eins og við þekkjum, varaformaður hennar. Mig langar til að spyrja hv. þingmann á svipuðum nótum og ég hef spurt tvo aðra nefndarmenn hér á fyrri stigum varðandi það sem snýr að fjármögnun þessa verkefnis í heild sinni. Það kom mér nokkuð á óvart að í engu væri vikið að fjármögnun málsins í nefndaráliti meiri hluta en í nefndaráliti minni hluta er komið inn á áhyggjur af þessu og í þeim umsögnum sem sérstaklega draga þetta fram. Áhyggjur af fjármögnun málsins koma m.a. fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mig langar sérstaklega að vísa í umsögn Barnaverndarstofu sem telur forsendur þess kostnaðarmats sem þarna liggur fyrir veikar, og þá erum við að taka alveg til hliðar fjármögnunarvandann sem virðist blasa við miðað við orðalag frumvarpsins. Það kemur fram mjög afgerandi gagnrýni á þær áætlanir sem liggja fyrir hvað kostnað af málinu varðar og það gengur svo langt að í umsögn Barnaverndarstofu er talið að vanmatið nemi rúmum 100%, bara í tilfelli nýrra verkefna Barna- og fjölskyldustofu eins og hún mun heita að þessum lagapakka samþykktum. Þegar ein umsögn og ein stofnun telur að þarna sé rúmlega 100% skekkja þá setur að manni ugg um að líklegt sé að það gæti verið víðar. En það sem ég vil spyrja hv. þingmann um er með hvaða hætti umræða um kostnaðarmat annars vegar (Forseti hringir.) og fjármögnun pakkans hins vegar átti sér stað innan nefndarinnar því að miðað við orðalag eins og það liggur fyrir (Forseti hringir.) í frumvarpinu sjálfu virðist málið vera ófjármagnað í fjármálaáætlun.