151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[16:46]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið og þátttöku hans í umræðunni hér í dag. Þær áhyggjur sem þingmaðurinn reifar eru sannarlega mikilvægar og kom fram í umræðunni í nefndinni að það skiptir gríðarlegu máli að menn væru tilbúnir í þetta verkefni og það væri ekki bara ríkið heldur aðrar stofnanir samfélagsins sem væru tilbúnar í þetta verkefni. Á fjárlögum þessa árs eru ætlaðar eitthvað í kringum 800 milljónir í verkefnið, ef mig misminnir ekki hrapallega, það er einhvers staðar á bilinu 750–800 milljónir. Á næsta ári eru ætlaðar í þetta í fjármálaáætlun, undir liðnum um samþættingu í þjónustu barna, 1.300 milljónir. Er það nóg? Ég þori ekkert að fullyrða um það en það er alla vega hugsað fyrir því. Hæstv. ráðherra hefur í fyrirspurnum hér fullyrt það og fulltrúar ráðuneytisins, eftir því sem ég man, ræddu á þeim nótum í nefndinni. Síðan var náttúrlega mjög mikil umræða um það í nefndinni að með samþykkt frumvarpanna myndi með tíð og tíma verða umtalsverður sparnaður í málaflokknum. En það breytir ekki því sem hv. þingmaður er að segja, að við þurfum að taka þennan, fyrirgefið, forseti, „upfront“- kostnað, (Forseti hringir.) fyrir fram kostnað, og gera ráð fyrir honum. (Forseti hringir.) Að því leytinu til skil ég áhyggjur hv. þingmanns.