151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[16:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Fyrst er það að segja að ég hef mikinn skilning á tiltrú manna og von um að þetta skapi allt sparnað í kerfinu síðar meir. En það kemur bara ekkert við þeim áhyggjum mínum að málið sé ófjármagnað eins og það liggur fyrir, það hefur ekkert með það að gera. Lög um opinber fjármál gera beinlínis ekki ráð fyrir því að slíkar slíkur framtíðarsparnaður sé talinn til tekna gagnvart þeim ákvörðunum sem er verið að taka í dag.

Í ljósi þessa velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður eigi einhverja skýringu fyrir mig á því sem kemur fram undir lið í greinargerðinni þar sem fjallað er um mat á áhrifunum, með leyfi forseta:

„Niðurstaða matsins er því á þá leið að viðbótarútgjöld ríkissjóðs vegna heildarbreytinganna geti numið á bilinu 1.360 til 1.802 millj. kr. árlega fyrstu árin eftir gildistöku laganna auk innleiðingarkostnaðar.“

Síðan er reiknað með að innleiðingartímabilinu ljúki árið 2024.

Svo segir á næstu síðu á, bls. 20, undir þessum sama lið í greinargerðinni, með leyfi forseta:

„Kostnaður vegna innleiðingar á árinu 2021 er fjármagnaður í fjárlagafrumvarpi ársins 2021.“ — Þetta er einmitt talan sem hv. þingmaður vísaði til hér í fjárlögum ársins. — „Að öðru leyti hefur ekki verið gert ráð fyrir útgjöldum sem leiða af samþykkt frumvarpsins í fjármálaáætlun.“

Þessi setning er svo undarleg að ég bara verð að biðja virðulegan hv. varaformann velferðarnefndar að segja mér hvort hann viti hvað hæstv. velferðarráðherra hafi gengið til þegar hann skrifaði þetta inn í greinargerð frumvarpsins, að það væri bara ekki búið að gera ráð fyrir þessu. Þetta stendur hérna í texta frá ráðherranum.