151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[16:51]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Einhvers staðar sagði: „Ef ég hefði spádómsgáfu“ o.s.frv. En hana hef ég ekki þannig að ég get ekki svarað þingmanninum hvað hafi ráðið orðum þess sem hélt á penna þegar þetta var skrifað í greinargerðina, það þori ég ekki að fara með. En hitt veit ég að kostnaðurinn sem af hlýst og er talinn upp í greinargerðinni, 1.300–1.800 milljónir, lendir náttúrlega ekki allur á ríkinu. Hluti af honum lendir á sveitarfélögunum og hluti af þeim kostnaði er fjármagnaður í gegnum jöfnunarsjóði sem mun væntanlega deilast í þeim hlutföllum sem oftast er, eftir því hvar kostnaðurinn verður til. Ég held að það sé mikilvægt en það er líka mikilvægt að minna á að við vitum ekki nákvæmlega í dag hver kostnaðurinn eða hver sparnaðurinn af þessum breytingum kann að verða. Við vitum jú hvað eitt stöðugildi kostar. Við vitum að þeim kostnaði sem mun falla á Barnaverndarstofu er mætt, a.m.k. hvað það varðar hvað ráðuneytið telur að þurfi til að ráða starfsmenn sem þarf að bæta við, en það hefur ekkert með þetta frumvarp að gera heldur næsta frumvarp á eftir.

Það er verkefni okkar allra að fylgjast með og það er verkefni ráðuneytisins að fylgjast með hvaða kostnaður muni hljótast af og bregðast við. Það er, eins og ég skil það, hugsað fyrir þessu fyrir næsta ár og það er vel en síðan þurfa (Forseti hringir.) þingmenn og ráðherrar og stjórnvöld sem þá ráða að huga að því að þeim kostnaði sé mætt.