samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Eins og komið hefur fram hjá öllum ræðumönnum hér er þetta hið besta mál og hugsunin og áformin mjög góð, ég leyfi mér að segja falleg. Ég er varamaður í velferðarnefnd. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, er aðalmaður í velferðarnefnd og er ekki viðstödd hér þannig að ég ákvað að koma hingað upp og fjalla um þetta mál. Eftir að hafa hlustað á ræður og lesið mér til um málið rekur mig í rogastans að sjá að það er ekki almenn sátt í nefndinni. Þær athugasemdir sem eru í umsögnum um þetta annars góða mál hafa ekki verið leiddar í jörð og málið er einhvern veginn ekki tækt til þess að hægt sé að klára það núna. Þetta er bara það sem ég les út úr því sem ég hef verið að kynna mér núna.
Ég talaði síðast í gær um það í ræðu að við værum mjög dugleg í því að fá góðar hugmyndir. Þeim málum væri hrundið af stað og yrðu að lögum, en þegar skipið væri komið á flot væru ekki til peningar fyrir olíu. Mér finnst það svolítið þannig með þetta mál að það þurfi lengri tíma til þess að verða burðugt og geta siglt farsællega um lífsins höf.
Mig langar aðeins að vitna í nefndarálit minni hluta velferðarnefndar. Það byrjar eins og allar ræðurnar hér í dag:
„Minni hlutinn styður þær grundvallarbreytingar sem lagt er upp með í þeim frumvörpum sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi í þágu velsældar barna.“
Síðan segir áfram, og þá koma ávirðingarnar:
„Í umsögn Persónuverndar voru gerðar athugasemdir við víðtæka upplýsingavinnslu sem frumvarpið fæli í sér og greint frá efasemdum um hvort sú vinnsla samrýmdist grunnreglu 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.“
Þarna gerir Persónuvernd þessar stóru athugasemdir. Það koma líka fram fleiri athugasemdir frá þeim.
Einnig er hér umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sem er mjög áfram um þetta mál, eins og komið hefur fram í ræðum, en lokaorðin — þetta eru nokkrar blaðsíður — eru samt sem áður þessi:
„Eins og fram hefur komið er sambandið fylgjandi markmiðum frumvarpsins. Margt er þó ennþá óljóst um útfærslu verkefna, fjármögnun“ — það hefur heldur betur komið fram í ræðum og andsvörum — „og innleiðingu en lykilatriði er að virk samvinna náist þvert á ráðuneyti og þvert á stjórnsýslustig.
Sambandið leggur höfuðáherslu á að sveitarfélögunum verði treyst og játað mikið svigrúm til að skipuleggja hin nýju verkefni eins og best hentar á hverjum stað. Að sama skapi verði tryggt að verkefnunum fylgi nauðsynlegt fjármagn.
Að því virtu að brugðist verði við tillögum sambandsins að breytingum styður sambandið að frumvarpið verði samþykkt sem lög frá Alþingi.“ — Að þessu virtu, hæstv. forseti.
Minnst hefur verið á biðlista í umræðunni og einhverjir eru farnir að kalla þessa ríkisstjórn „ríkisstjórn hinna löngu biðlista“. Það kom fram að um 1.000 börn eru á biðlistum í velferðarkerfinu. Bið eftir talmeinafræðingum getur tekið allt að þrjú ár og þrjú ár eru ansi langur tími í lífi barns; það er langur tími í lífi manns á mínum aldri, hvað þá barns. Síðan kemur fram að fjármögnun í fjármálaáætlun nær ekki fram í tímann. Ég segi því bara eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar: Mann rekur í rogastans. Það er reyndar búið að óska eftir því að málið verði tekið inn í nefnd á milli umræðna en ég á ekki von á því að hægt verði að tryggja fjármögnun í fjármálaáætlun sem búið er að samþykkja fram í tímann. Mínar áhyggjur eru þær að þetta annars ágæta mál — það er mjög góð hugsun á bak við þetta mál sem felst í því að við ætlum að hugsa um börnin okkar og velferð þeirra — er ekki tækt til siglingar eins og búið er um það hér.
Þegar ég sat í sætinu mínu áðan hugsað ég með mér að ekki væru nema nokkrir mánuðir til kosninga. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra, sem tók þá skírn að bæta því við að hann væri barnamálaráðherra, vill að sjálfsögðu að þetta mál verði að lögum. Ég hugsaði því með mér: Getur verið að ráðherrann vilji að þetta verði að lögum strax af því að það eru kosningar í haust og það muni hjálpa honum í kosningabaráttunni án þess, eins og komið hefur fram hér í dag, að búið sé að tryggja að þetta mál verði til gagns eins og lagt er upp með?
Af því að mér er gjarnt að vitna í máltæki úr sjómennskunni þá er til saga af skipstjóra einum sem var á nýju skipi og var góður með sig. Skipið sigldi greitt, það var skip undir seglum, það er það langt síðan. Áhöfn hans lenti í kappsiglingu við fleiri skip, tvö eða þrjú önnur skip. Þegar þeir voru fremstir í þeirri siglingu kallaði áhöfnin: Skipstjóri góður, það er sker fram undan. Við þurfum að sveigja fyrir skerið til að stranda ekki. Þá sá skipstjórinn að ef hann myndi sveigja fyrir skerið yrði hann ekki fyrstur í þessari siglingu. Því sagði hann: Við beygjum ekki neitt. Skipið er nýtt en skerið er fornt og skal því undan láta. Þetta datt mér í hug þegar ég varð þess áskynja að hæstv. barnamálaráðherra þarf að fá þetta mál í gegn svo að honum gangi vel í kosningunum í haust.