samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að fagna því að þessi mál séu komin hingað til þingsins. Það hefur verið mjög ánægjulegt að fá að taka þátt í því þverpólitíska starfi sem hefur átt sér stað um þessi mál á þessu kjörtímabili. Það verður að segjast eins og er að allir þeir sem komu að þessu máli eiga þakkir skildar. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, setti málið á dagskrá. Hann kallaði til liðs við sig alla þá sem mögulega geta að málum komið og skipaði þverpólitíska nefnd. Ég var skipaður í þá nefnd og hef af mikilli ánægju unnið að þessu verkefni með þeim hópi. Það var það góða við þann hóp að við unnum málið með öllum hlutaðeigandi aðilum og lögðum okkur fram um að fá fram sjónarmið sem flestra. Við sendum út meira en 600 bréf með beiðni um samstarf, um að fá ábendingar og virkja fólk í því að komast að sem bestri niðurstöðu í því stóra og flókna en mikilvæga máli sem umönnun barna er.
Málefni barna eru eitt það mikilvægasta sem við tökumst á við í þessu samfélagi, að búa börnum gott og heilnæmt umhverfi. Það var því mikilvægt að fá svona stóran hóp til þess að skera upp kerfið og fara yfir allar þær áskoranir sem eru í þessum málaflokki og hugsa málin upp á nýtt. Eins og ég hef oft sagt þarf að snúa olíuskipinu, það er það sem þarf að gera. Nú hafa allir sameinast um að gera það og hægt væri að tala í marga daga um hinar ýmsu áskoranir sem þarna eru. Það er kannski einmitt það sem þessi vinna fól svolítið í sér, að fara yfir breiðu línurnar, gera vissar breytingar svo að hægt væri að hefja vegferðina.
Í grunninn snýst þetta um það sem kallast snemmtæk íhlutun, að það séu allir sem beri ábyrgð á því að tryggja velferð barns og einn geti ekki fríað sig ábyrgð og bent á þann næsta. Það er kannski grunnvandamálið í þessum málaflokki, sérstaklega þegar sveitarfélögin og ríkið fara að takast á um það hver eigi að veita þjónustuna, hver eigi að borga. Það eru þessi gráu svæði sem eru svo hættuleg í þessu og það er það kerfi sem þarf að komast yfir. Við erum að reyna að nálgast það með því að allir beri ábyrgð á því að fylgjast með velferð barnsins og eigi að flagga eða láta vita ef eitthvað er að. Þá er hægt að bera flöggin saman og bregðast við strax í upphafi þannig að hægt sé að bregðast við og veita fjölskyldum aðstoð á fyrsta stigi en ekki bíða eftir því að vandinn færist yfir á þriðja stigið. Allir biðlistarnir í meðferð og annað sem við töluðum um í dag og þessi úrræði sem mestur skortur er á og við erum að tala sem mest um eru eiginlega öll á öðru eða þriðja stigi. Við erum að reyna að færa alla þjónustuna niður í fyrsta stigs þjónustu til þess að draga úr þörfinni á þriðja stigi. Það er það sem þetta verkefni snýst um og allir þurfa að sameinast um það.
Ég hef því ákveðið að fjalla um þetta mál svolítið stórt, segja að þetta sé stóra breytingin sem er mikilvægt að komist af stað, að við fókuserum á að bregðast strax við með stuðningi til barna og fjölskyldna þannig að hægt sé að takast á í forvarnahlutanum með fyrsta stigs þjónustu og draga þá úr þörf á frekari meðferð eða úrræðum. Ég tel gríðarlega mikilvægt að þetta takist og að hagsmunir barnsins séu í fyrirrúmi en ekki hagsmunir kerfisins, hvort það er ríkið eða sveitarfélagið sem á að borga, hvaða úrræði eru í boði og annað slíkt.
Ég vil leggja sérstaklega áherslu á það, þess vegna kem ég hingað upp, að fjölskyldan þarf að hafa valfrelsi í þessu máli og taka ábyrgð á sínu fjölskyldulífi, fá að hafa ábyrgðina hjá sér. Það er alger frumforsenda þess að við náum árangri í fjölskyldu- og barnamálum. Það er fjölskyldan sem veit hvað er barninu fyrir bestu og hún þarf að hafa það valfrelsi sem þarf til þess að sinna þeirri ábyrgð sem því fylgir að reka fjölskyldu. Og hvað er ég að tala um þarna? Í dag er alltof mikið um svokölluð ríkisúrræði sem öllum er stýrt inn í og ferillinn stýrist af því hvort það er sveitarfélagið eða ríkið sem ber ábyrgðina, hver eigi að borga og hvaða úrræði séu í boði hjá sveitarfélaginu og hvaða úrræði séu í boði hjá ríkinu í stað þess að snúa þessu við og nýta allan þann fjölda af fólki sem er bæði hjá ríki og sveitarfélögum, líka sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk í félagsþjónustu o.fl. Þetta fólk er að búa til margvísleg úrræði, hefur hugmyndir, þekkir vandamálin, leggur sig fram inni í skólunum og annars staðar um að móta einhver úrræði og við þurfum að hafa greiðara aðgengi að þessum úrræðum. Þessi úrræði þurfa að vera aðgengileg fyrir fjölskyldurnar. Nú er farið inn í skólann til að fá samþykki hjá kennaranum um það hvað sé að barninu og þá er beiðni send til félagsþjónustunnar eða skólaskrifstofunnar sem þarf svo að fara í einhverja ríkisgreiningu — allt tekur þetta langan tíma og fólki er vísað á ríkisúrræði sem getur verið hjá sveitarfélaginu eða ríkinu eftir því hver á að borga. Í staðinn ætti foreldrið sjálft að geta tekið ákvörðun strax, þegar það finnur að um er að ræða vandamál hjá sínu barni, um að það þurfi stuðning og barnið getur þá bara farið beint þangað inn. Ég held að við þetta muni draga mikið úr þeim biðlistum sem ég hef heyrt mikið rætt um hér í dag og við vitum um. Það dregur úr þeim tíma sem fólk er að bíða eftir lausn sinna mála og ég held að þetta geti dregið verulega úr þeim fjárhæðum sem allar þessar greiningar og allur þessi biðtími og öll þessi sérhæfðu úrræði kosta okkur í dag. Úrræðin sem foreldrar velja fyrir börnin sín verða oft miklu skilvirkari og hagkvæmari fyrir alla aðila. Þetta skiptir miklu máli.
Ég hef orðið var við það í þessum málaflokki að ef það er ekki sveitarfélag eða opinber stofnun sem finnur upp á úrræðinu þá er það ekki í boði. Þó að það sé fólk sem er að bjóða úrræði sem virka þá fæst ekki aðgengi að því af því að það er ekki úrræði sem sveitarfélagið, þessi opinbera stofnun, var að veita eða skapa sjálft. Svona getum við ekki haft þetta. Þegar þessi kerfisbreyting fer af stað, og við erum að innleiða hana, er mjög mikilvægt að við gefum fólkinu frelsi og möguleika til að koma með úrræðin og gefum svo fjölskyldunum og foreldrunum frelsi til að sækja þangað. Svo getum við sagt: Það eru ekki allar fjölskyldur jafn vel í stakk búnar til að vita um úrræðin eða sækja sér aðstoðina. Þá kemur skólinn, félagsþjónustan eða skólaskrifstofurnar inn í og veita leiðbeiningar og ráðgjöf og annað. Þess vegna erum við líka með sameiginlegan gagnagrunn og sameiginlegar tilkynningar og allt það sem við erum að tala um í þessu til þess að sjá fyrr ef það er eitthvað sem ekki gengur eðlilega fyrir sig. Ég tel það gríðarlega mikilvægt. Ég þekki það bara úr störfum mínum í lögreglunni að það sem var að gerast hjá lögreglunni var ekki endilega vitað á heilsugæslunni og það sem var að gerast hjá heilsugæslunni var ekki endilega vitað um í skólanum o.s.frv. Þar af leiðandi var ekki hægt að grípa inn í fyrir hönd barnsins jafn snemma og þurft hefði til að ná árangri og minnka skaðann fyrir barnið og þannig að það kalli á frekari úrræði á seinni stigum máls.
Þó að við séum ekki búin að hnýta hvern einasta enda í þessum málaflokki, sem seint verður gert, hann er það stór, tel ég gríðarlega mikilvægt að leggja af stað í þessa vegferð. Við erum búin að vinna gríðarlega mikilvæga vinnu í því að sameina fólk um að breytinga sé þörf. Það er ekki oft sem svona mikil sátt tekst á milli stofnana og á milli kerfa, milli stjórnmálamanna og annarra aðila í því að stefna í sömu átt. Við erum því með gríðarlegt tækifæri fyrir framan okkur en ég vil benda á að það skiptir líka gríðarlega miklu máli hvernig unnið verður úr þessum málum í framhaldinu. Þá vil ég enn og aftur leggja áherslu á að ábyrgðin á að vera hjá foreldrunum, hjá fjölskyldunni, ekki í stofnunum hins opinbera, ekki í skólunum, ekki hjá félagsþjónustunni og annað slíkt heldur hjá foreldrunum sjálfum. Það er gríðarlega mikilvægt. Maður upplifir það kannski svolítið sem foreldri sjálfur að þegar börnin leggja af stað í skólann á morgnana fari ábyrgðin með og valfrelsið. Skólarnir hafa meira orðið uppeldisstofnanir en fræðslustofnanir og í þessu þurfum við að spóla til baka. Við höfum tækifæri til þess í því hvernig þetta verður framkvæmt og við verðum öll að sameinast um að fara í þá vegferð. Ég hef trú á því að skólarnir og kennararnir séu bestir í að uppfræða börnin og fjölskyldurnar séu bestar í að ala upp börn. Þannig viljum við hafa það.
Ég fagna þessu máli, er stoltur af að hafa fengið að taka þátt í því og mun fylgja því eftir að framkvæmdin fari á sem besta veg. Ég veit að það er fullt af lausum endum sem á eftir að hnýta og þetta er verkefni sem fer ekki frá okkur. Við þurfum áfram að standa vörð um þessi mál hér í þessum sal sem og aðrir sem koma að málefnum barna úti í öllu samfélaginu.