samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en ég verð að vera algjörlega ósammála honum í sambandi við persónuverndina vegna þess að persónuverndin skiptir alveg gífurlegu máli. Við getum ekki bara sagt að við ætlum að treysta einhverjum stofnunum fyrir persónuvernd. Við erum með dómstóla. Þeim er ekki treystandi fyrir persónuvernd, ekki dómstólum, Hæstarétti, héraðsdómum. Þeim er ekki treystandi fyrir persónuvernd, þeir eru að brjóta á persónuvernd núna í dag, meira að segja er Persónuvernd með þá til skoðunar. Þannig að ég hef rosalega miklar áhyggjur af persónuvernd, af eigin reynslu gagnvart heilbrigðisstofnunum, hvernig persónuverndin er þar hvað varðar sjúkraskrár og annað. Ég segi fyrir mitt leyti að þar eigum við og verðum að girða fyrir þannig að það sé enginn vafi og alveg garanterað að þegar þessi gögn verða sett inn í kerfið sé kerfið pottþétt varið þannig að ekki sé á nokkurn hátt hægt að misnota þau.
Síðan er annað sem við gleymum líka í þessu. Núna er verið að umturna öllu kerfinu. Það er verið að búa til nýja stofnun og það þarf að ráða fleira fólk og við vitum af reynslunni að þetta mun taka tíma og þetta mun valda vandræðum. Það munu örugglega koma tímar þar sem jafnvel biðlistar lengjast og kerfin tali ekki saman og þau virka ekki. Þess vegna hef ég áhyggjur af því að við séum kannski að fara of hratt og of geyst af stað, hvort það sé ekki betra að fara aðeins hægar, byggja þetta á kletti, ekki á sandi, ekki kviksyndi heldur bara kletti þannig að það sé pottþétt að við séum búin að kortleggja þetta og það sé engin hætta, hvorki hvað varðar persónuvernd né að kerfið ráði ekki við það sem við erum að gera og biðlistar lengist kannski, sem ég óttast því miður.