151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[17:23]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ekki skilja mig þannig að ég hafi ekki áhyggjur af persónuvernd. Ég tel hana gríðarlega mikilvæga. En það sem ég er að segja er að við erum með almenna löggjöf og ef við erum að segja að persónuvernd sé vandamál á fleiri stöðum en þessum þá þurfum við bara að skoða persónuverndarlöggjöfina í heild sinni og hvort við getum tekist betur á við það þar, en við leysum ekki öll persónuverndarvandamál samfélagsins í þessari löggjöf. Ég vil benda á það að við höfum unnið með Persónuvernd og unnið með persónuverndarmálin í þessu máli allan tímann þannig að það hefur verið til skoðunar allan tímann og er ekki verið að kasta til hendinni þar. Ég er bara að segja að ég er sáttur og tel að það dugi hvert við erum komin með persónuverndarmálin í þessari löggjöf sem leggst ofan á þá almennu persónuverndarlöggjöf sem er í gildi í landinu í dag. Því tel ég ekki ástæðu til að staldra lengur við með málið hér á lokadögum þingsins heldur eigum við að klára málið. Það tel ég að sé gríðarlega mikilvægt.

Varðandi biðlistana og hvort við séum undirbúin þá höfum við verið að vinna nánast allt þetta kjörtímabil að þessu máli í miklu samráði við þær stofnanir og þá aðila sem eru að fara að taka við málinu þannig að málið er ekki nýtt fyrir neinum. Ég tel meira að segja það vera þannig að á meðan við erum búin að vera að vinna í þessu máli hér, þverpólitísk nefnd með ráðuneytinu og með þessum stofnunum, þá hafa mörg mál leyst. Þetta er strax komið í innleiðingu. Þessi hugsun er strax farin að virka. Þannig að innleiðingin er hafin þó að málið sé ekki komið af stað og það er strax búið að hafa jákvæðar afleiðingar. Ég tel bara mikilvægt að við klárum málið til að hraða þeim góðu áhrifum sem þetta hefur enn frekar.