samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir prýðisgóða ræðu þar sem var farið af mikilli dýpt og skilningi í gegnum málið sem liggur hér fyrir og vil ég þakka honum sérstaklega fyrir það. En það eru nokkur atriði sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Það kom fram í máli framsögumanns nefndarálits meiri hluta áðan, hv. þm. Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, að sveitarfélög hér og þar um landið væru farin að vinna eftir þessu nú þegar. Hún nefndi Hafnarfjörð man ég, og að ég held Akureyri og eitthvert eitt sveitarfélag til en í öllu falli var Hafnarfjörður nefndur. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað sé þá í þessu máli og þessum málapakka sem er að nást fram, sem er ekki hægt að ná fram innan núverandi regluverks ef raunin er sú að sveitarfélög séu sum hver þegar farin að vinna eftir þessari nálgun. Ef spurningin snýst bara um fjárveitingar væri áhugavert að þær upplýsingar kæmu fram. Í því samhengi er ég ekki að mæla gegn efnisatriðum málanna en ef hægt er að ná þessum markmiðum fram undir núverandi regluverki í meginatriðum, til hvers er þá leikurinn gerður? Vegna þess að mér sýnist á öllu, og ég kem kannski inn á það í seinna andsvari, að fjármögnunarhlutinn virðist hafa gleymst, a.m.k. að einhverju marki. Fyrst er þessi spurning til hv. þingmanns: Er eitthvað sem fyrirbyggir það að sveitarfélög geti verið að sinna þeirri þjónustu sem í meginatriðum ræðir um í þessu frumvarpi undir núverandi regluverki?