samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er athyglisvert að meginmarkmiðin náist fram með þeim atriðum sem nefndarmenn, fulltrúar úr minni hluta velferðarnefndar, höfðu mestar áhyggjur af við byrjun umræðunnar, sem sneru að persónuverndarsjónarmiðum, eins og ég skil málið, og að það sé kjarninn í því að ná fram þessum markmiðum málapakkans, það hangi á því að samkeyrsla upplýsinga og þar fram eftir götunum geti átt sér stað.
Í því ljósi langar mig að spyrja hv. þingmann, í ljósi þeirra áhyggna sem liggja fyrir í málinu, hvort ekki væri ástæða til að fara að ráðleggingum sem koma m.a. fram í nefndaráliti minni hluta velferðarnefndar, að fresta gildistökuákvæðinu þótt ekki væri nema um nokkra mánuði til að tryggja að þessi persónuverndarsjónarmið, þessi kerfi, þessi forrit sem þarf að vinna, verði tilbúin. Er ekki einhver flausturskapur yfirvofandi yfir verklaginu? Málið er svo risastórt og hagsmunirnir miklir. Hver er skaðinn af því að mati hv. þingmanns að fara varlega og fresta gildistökunni um, ég held að áðan hafi verið nefndir fjórir mánuðir, segjum hálft ár? Telur hv. þingmaður að það verði einhver skaði af því ef þessi samkeyrsla upplýsinga og krosstenging og það sem snýr að persónuverndarsjónarmiðum er kjarnaatriðið í að ná fram því bætta kerfi sem við erum hér að reyna að innleiða?