samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .
Virðulegi forseti. Mér sýnist að hv. þingmenn Miðflokksins séu að hlaða upp skerjum sem hægt er að steyta á en ég held að það takist nú kannski ekki. En auðvitað verður hægt að fjalla um málið og við erum búin að kalla þetta mál inn til nefndar milli 2. og 3. umr. og þá ætti að koma betri skýring. Ástæða þess að í frumvarpinu sjálfu er ekki talað um fjármögnun í fjármálaáætlun er að mælt var fyrir frumvarpinu 30. nóvember. Hér er verið að lesa upp úr frumvarpinu og nefna útskýringar hæstv. ráðherra en fjármálaáætlun var ekki komin á dagskrá þá. Eftir því sem mér skilst, og til þess að tryggja mig með það, þá er þetta fullfjármagnað í fjármálaáætlun. Og þó að við getum kannski ekki verið að bítast um það hér í þessum stól, benda á einhverja nákvæma línu sem þar stendur, er búið að fullyrða það og það er inni í fjármálaáætlun.
Ég held að það megi segja að við séum, eðlilega, að fara af stað með gríðarlega mikilvægt mál. Við skulum ekki vera að hlaða upp óþarfa skerjum til að steyta á af því að í reynd erum við sammála um að koma þessu áfram og erum farin að vinna að þessu. Það er ekki hægt að gera lítið úr hagrænum áhrifum þótt þetta komi ekki til tekna. Til framtíðar er þetta mikilvægt arðsemisverkefni sem við erum að fara í.
Ég ætla bara að koma þessu hér að. Ég er ekki með neina spurningu en ég ætla bara að fullyrða að þetta sé fullfjármagnað í fjármálaáætlun.