151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[17:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég verð auðvitað að vísa þeim ummælum til föðurhúsanna að hér sé verið að reyna að hlaða upp skerjum til að þvælast fyrir málinu. Þvílík endemis della hjá hv. þingmanni, framsögumanni meiri hlutans. Hvað er þetta? Á hvaða plani erum við? Ég tel mig vera hér með mjög málefnalega gagnrýni og spurningar og áeggjan til nefndarinnar um að leiða í ljós með hvaða hætti þetta er en engum af þeim nefndarmönnum sem hafa komið hér fyrr í dag hefur tekist það.

Og af því að fjármálaáætlunin liggur hér fyrir hefði hv. framsögumaður meiri hlutans bara getað bent á hvar þetta liggur því þetta hefur verið í umræðu í marga klukkutíma. Ef þetta væri allt saman svona skýrt og gott væri væntanlega ekki mikið vandamál að benda á hvar þeirri fjármögnun væri fyrir komið. Ég hef ekki fundið það í fljótu bragði en ég er heldur ekki nefndarmaður. Mér þykir alveg ótrúlegt að fjármögnun svona mikilvægs máls — ég ítreka að ég held að allir þingmenn séu sammála þeim markmiðum sem hér eru sett fram — sé bara látin reka á reiðanum og hér komi hv. framsögumaður nefndarinnar og segi efnislega: Ég get ekki bent á það neins staðar en þetta er hérna einhvers staðar, og skammi svo þann sem hér stendur fyrir að reyna að hlaða upp einhverjum skerjum til að láta þetta mál steyta á. Ég vísa þessu algerlega til föðurhúsanna.