Barna- og fjölskyldustofa.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir hans ræðu. Af því að ég veit að þingmaðurinn er mjög ötull í að fjalla um mál þeirra sem minna mega sín, mjög duglegur í baráttunni fyrir öryrkja og eins fyrir börn, þá langar mig að spyrja þingmanninn: Ég tók eftir því í ræðu þingmannsins að hann hafði efasemdir um tímann sem tæki að byggja þetta kerfi upp í tengslum við eldra kerfi eða við eldri kerfi. Mér fannst svipaður tónn í því eins og svo oft áður í ræðu þingmannsins þegar hann talar um að brjóta þurfi upp bótakerfi fyrir öryrkja og þá sem þurfa á bótum að halda til að byrja upp á nýtt.
Hvað er það sem veldur þingmanninum þessum áhyggjum í sambandi við það að þessi kerfi, eins og þingmaðurinn sagði, tali saman? Er eitthvað, sem reynslan hefur kennt þingmanninum af því að vera að berjast við kerfið um árabil, að valda þingmanninum þeim ótta eða hefur þingmaðurinn trú á því að þetta gæti gengið smurt og vel fyrir sig ef fjármögnunin væri í lagi? Eða hefur þingmaðurinn virkilega áhyggjur af því að það taki langan tíma að stilla þessi kerfi saman?