151. löggjafarþing — 106. fundur,  3. júní 2021.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

561. mál
[18:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að biðja hv. framsögumann velferðarnefndar afsökunar. Þetta er svoddan málaruna hér sem kemur frá hæstv. velferðarráðherra. Hér var 11. mál á dagskrá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og nú erum við í Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Erum við þá ekki komin á sömu blaðsíðuna?

Ég taldi framsöguna, af því að ég missti af upphafi hennar, vera vegna Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, en látum það nú liggja milli hluta. Það hefur greinilega verið snöggafgreitt úr því að það mál er búið hér í umræðunni. En ég ætla nú samt að leyfa mér að biðja um gott veður hjá framsögumanni velferðarnefndar af því að þessar vangaveltur mínar sneru auðvitað að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Og aftur til að hnykkja á þessum atriðum: Hefði ekki verið nærtækara að gera bara nafnbreytingu þarna á og breyta Barnaverndarstofu í þetta nýja apparat sem er kallað Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og hnýta þá þar við þeim verkefnum sem bætast raunverulega við því að fljótt á litið sýnist manni þetta að miklu leyti fyrst og fremst vera breyting á nafni Barnaverndarstofu?

Og aftur biðst ég forláts á því að hafa ekki veitt skilum á milli mála eftirtekt á meðan hv. framsögumaður allra nefndarálita velferðarnefndar í þessum svokölluðu barnamálum var hér í pontu. En spurningin stendur og ég biðst forláts að mér hafi yfirsést, eins og ég segi, skilin á milli málanna, þ.e. hér í pontu.