Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, sko, verði þetta frumvarp að lögum þá verður Barnaverndarstofa lögð niður. Og ég veit ekki alveg ferilinn í þessu en verið er að stofna nýja stjórnsýslustofnun og hún mun heita Gæða- og eftirlitsstofnun sem tekur að einhverjum hluta við þeim hlutverkum sem Barnaverndarstofa hafði, þó ekki öllum, að því er mér skilst.
Hvort sem það hefði verið nafnbreyting eða eitthvað annað þá geri ég ráð fyrir að í þessu felist að leggja niður eina stofnun og búa til aðra og verkefnin færist þarna eitthvað á milli. Í aðdraganda samþættingarfrumvarpanna kemur fram að í þeim tilgangi að brjóta niður múra og kerfi og bæta þjónustu í þágu barna var það hluti af kerfisbreytingunum að skipta þessu upp, leggja niður Barnaverndarstofu, setja einhver af eftirlitshlutverkunum inn í þessa Gæða- og eftirlitsstofnun og hitt héldi svo áfram inni í Barna- og fjölskyldustofu eða eitthvað slíkt. Ég þekki ekki nákvæmlega verkefnin sem þarna er dreift á milli en þetta var hugsunin með þessu.