151. löggjafarþing — 107. fundur,  4. júní 2021.

um fundarstjórn.

[13:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti mælist til þess að menn haldi sig við eitthvað sem varðar þingið í umræðum um fundarstjórn forseta þó að vissulega hafi verið vaxandi umburðarlyndi gagnvart því að menn ræði hvað sem er. Prófkjör stjórnmálaflokka úti í samfélaginu eiga tæplega erindi í umræðu um fundarstjórn forseta. Það er skoðun forseta og henni verður ekki breytt. Hv. þingmaður fær aftur orðið.