151. löggjafarþing — 107. fundur,  4. júní 2021.

þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

468. mál
[13:14]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég hef gert ákveðna fyrirvara við það að ráðherrar skuli ekki fá skýrari reglur um það hvenær þeim ber að skila svörum við fyrirspurnum þingmanna og er þó ærin ástæða til að skerpa á því. Engu að síður tel ég þær breytingar sem gerðar voru í meðferð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem ég vil hrósa fyrir starfið, til bóta. Við munum styðja þetta mál en ég legg á það áherslu að haldið verði áfram að vinna að því að koma því fyrir þannig að ekki sé hægt að víkjast undan því að ráðherrar skili svörum við fyrirspurnum þingmanna innan lögbundins frests, eða þeir hafi verra af ella.