þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Forseti. Ég tek undir með síðasta ræðumanni. Það er áréttað í nefndarálitinu að í vinnslu nefndarinnar á málinu sé tekið á þessum þáttum og á sama tíma passað upp á og áréttað um rétt þingmanna til að fá þessar upplýsingar, sem er náttúrlega grundvöllur eftirlitsskyldu okkar.
Annars langar mig virkilega að þakka fyrir samstöðu og samvinnu í nefndinni. Mig langar að þakka þingskapanefnd fyrir málið og forseta þingsins, Steingrími J. Sigfússyni, sérstaklega, og okkur öllum, fyrir að leiða þetta til lykta. Takk.