Barna- og fjölskyldustofa.
Hæstv. forseti. Það er eins með þetta mál. Við í þingflokki Miðflokksins munum einnig sitja hjá. Það verður kallað inn til nefndar líkt og málið sem við vorum með áðan. Sérstaklega gagnvart þessu máli er eins og byrjað sé á öfugum enda. Með leyfi forseta ætla ég að grípa hér örstutt í umsögn frá Akureyrarbæ:
„Skv. 5. gr. frumvarpsins er Barna- og fjölskyldustofu heimilað að starfrækja gagnagrunna og stafrænar lausnir vegna verkefna stofnunarinnar. Mikilvægt er að við smíði og starfrækslu slíkra gagnagrunna sé horft til þess að ekki sé verið að búa til íþyngjandi verkefni á sveitarfélögin.“
Þetta er eitt atriði sem ég dreg sérstaklega út úr mörgum umsögnum sem við höfum fengið um öll þessi mál og þessar umsagnir skipta máli.